Alls voru 46 mál skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan fimm í nótt til klukkan fimm síðdegis. Samkvæmt dagbók hennar segir að eitthvað hafi borist af tilkynningum um ágreining á milli manna og aðra sem voru í annarlegu ástandi. Mál sem afgreidd voru á vettvangi.
Annars sinnt lögreglan hefðubundin eftirlit með umferðinni og stöðvaði meðal annars ökumann fyrir ofhraðan akstur. Ökuníðingurinn sá ók á 113 kílómetrum á klukkustund á vegkafla þar sem hámarkshraði er 80 km/klst.
Þá var tilkynnt um innbrot í 101 Reykjavík en þar hafði óprúttinn aðili gramsað og gripið úr geymslum íbúa. Ekki er vitað hver þjófurinn er.
Í Hafnarfirði barst einnig tilkynning um innbrot og átti það sér stað í iðnaðarhúsnæði. Ekki er vitað hver gerandinn er í því tilviki heldur.
Þá voru tveir fingralangir handteknir í verslun, í 201 Kópavogi, eftir mislukkaða ránstilraun.