„Laust fyrir 13:00 var bifreið ekið á tvær kyrrstæðar bifreiðar við Fríkirkjuveg. Tjónvaldur ók af vettvangi en lögregla aflaði upplýsinga um hver meintur tjónvaldur væri með aðstoð vegfarenda. Talsvert eignatjón varð,“ svo segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en jafnframt hafa útköllin að mestu leyti snúið að umferðaóhöppum.
Rétt fyrir 06:00 var bifreið stöðvuð á Suðurlandsvegi við embættismörkin eftir að hafa mælst á 130km/klst þar sem hámarkshraði er aðeins leyfður 90km/klst
Laust fyrir 13:00 var bifreið ekið á tvær kyrrstæðar bifreiðar við Fríkirkjuveg. Tjónvaldur ók af vettvangi en lögregla aflaði upplýsinga um hver meintur tjónvaldur væri með aðstoð vegfarenda. Talsvert eignatjón varð.
Laust fyrir 13:30 var bifreið stöðvuð á Kringlumýrarbraut í Fossvogi eftir að hafa mælst á 106km/klst þar sem hámarkshraði er aðeins leyfður 80km/klst
Á sama tíma og hér að ofan varð umferðarslys á Dalvegi og slösuðust tveir aðilar minniháttar. Ekki ljóst hvað orsakaði áreksturinn.
Laust fyrir 14:00 var bifreið stöðvuð á Kringlumýrarbraut í Fossvogi eftir að hafa mælst á 118km/klst þar sem hámarkshraði er aðeins leyfður 80km/klst.
Rétt fyrir 15:00 varð árekstur á Skemmuvegi í Kópavogi. Ökumenn bifreiðanna voru ekki sammála um málsatvik og því var lögregla kölluð til. Engin meiðsli urðu á fólki en önnur bifreiðin var óökufær.
Að lokum varð árekstur á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði um kl. 15:30 en reyndist hann vera minniháttar.