Afmælisbarn dagsins er hvers manns hugljúfi en það er hin bráðfyndna og frábæra leik- og söngkona Ólafía Hrönn Jónsdóttir eða Lolla eins og hún er stundum kölluð. Um er að ræða stórafmæli en hún er sextug í dag.
Ólafía Hrönn útskrifaðist úr Leiklistaskóla Íslands árið 1987 og hefur síðan leikið í fjöldi hlutverka á sviði sem og í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Þá er Ólafía Hrönn með ótrúlega fallega söngrödd en hún er meðlimur í hinni bráðskemmtilegu hljómsveit Heimilistónar ásamt öðrum leikkonum.
Mannlíf heyrði í Lollu hljóðið og spurði hana hvort hún ætlaði að halda upp á stórafmælið.
„Já, ég er í Edinborg með krökkunum mínum og tengdabörnum. Þetta er svona stutt ferð út af afmælinu, alveg yndislegt.“ svaraði hún hress.
En hvað er framundan hjá afmælisbarninu?
„Ég er að leika í Jólaboðinu og síðan Sjö ævintýri um skömm. Og svo eru jólatónleikar hjá Heimilistónum. Við vorum að gefa út nýja plötu.“
Mannlíf óskar Ólafíu Hrönn innilega til hamingju með afmælið!