Ólafur Walter Stefánsson er látinn, hann var 91 árs að aldri. Frá þessu greinir mbl.is.
Ólafur fæddist í Reykjavík árið 1932. Foreldrar hans voru þau Stefán Björnsson og Sigríður Jónsdóttir. Ólafur ólst upp í Reykjavík og lauk námi við Verzlunarskóla Íslands árið 1952 og fór lögfræðinám í Háskóla Íslands.
Eftir nám hóf Ólafur störf í dóm- og kirkjumálaráðuneytinu en frá 1972 til 2002 var hann skrifstofustjóri þess ásamt því að vera staðgengill ráðuneytisstjóra og var mikilvægur ráðgjafi þar á bæ. Ólafur var á sama tíma formaður happdrættisráðs HHÍ.