- Auglýsing -
Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó Veðurguð eins og flestir þekkja hann, á von á barni með kærustu sinni, Alexöndru Eir Davíðsdóttur. Greint var frá því að parið ætti von á barni á heldur óvanalegan hátt, en kom það fram í dómssal í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.
Ingó og Alexandra hafa verið par í tæpt ár en er verðandi faðirinn nú staddur í Héraðsdómi vegna dómsmáls. Hann stefndi Sindra Þór Sigríðarsyni fyrir meiðyrði og fer aðalmeðferð nú fram í málinu. DV fjallaði fyrst um málið