Óli Palli vill sniðganga Eurovision.
Pressan á útvarpsstjórann Stefán Eiríksson þyngist sífelt en æ fleiri tjá sig um að Ísland ætti að sniðganga Eurovision til að mótmæla gegndar- og fordæmalausum árásum Ísraelsmanna á Gaza og Vesturbakka Palestínu. Nú þegar hafa yfir 18.000 Palestínumanna verið drepnir, þar af tæplega 8.000 börn. Talan gæti þó hafa hækkað þegar þetta er lesið. Stefán hefur svarað því til að ekki sé rætt um að sniðganga söngkeppnina.
Einn þeirra sem hafa talað fyrir sniðgöngunni er hinn reyndi útvarpsmaður á Rás 2, Ólafur Páll Gunnarsson eða Óli Palli eins og hann er kallaður, en hann skrifaði Facebook-færslu í dag þar sem hann segir að engin afstaða sé í raun afstaða. Færsluna má lesa hér fyrir neðan: