Ómar Ragnarsson óttast að harmsaga Kirkjufells muni breiðast út um alla veröld og að fjallið verði að lokum alræmt. Erlendur ferðamaður féll og lést þar á dögunum. Ómar segir á bloggi sínu að það verði að banna ferðir á Kirkjufell strax.
„Nú þarf að taka heldur betur til varnar dýrð og gefandi guðdómleika Kirkjufells í Grundarfirði í stað þess að þessi ferðamannastaður verði illræmdur um víða veröld. Það kostar að vísu fé og fyrirhöfn, en þá ber þess að gæta, að hvert mannslíf á jörðinni er einstakt undur – engin tvö eru eins,“ segir Ómar.
Hann segir hægt að beina ferðum fólks á önnur svæði í kringum Kirkjufell. „Mikið er í húfi. Við Íslendingar, varðmenn einstæðrar náttúru landsins, verðum að setja í það vinnu, kraft og fé að koma í veg fyrir að harmsaga Kirkjufells verði lengri, heldur verði afstýrt öllum ferðum á fjallið og í staðinn valdir af kostgæfni bestu staðirnir í kringum það, þar sem fegurð þess og gildi verði í samræmi við nafn þess, sem vísar til trúar og tilbeiðslu.“