Ómar Ragnarson bendir á í nýrri bloggfærslu að þrátt fyrir „heppilega“ staðsetningu gosa síðastliðinna þriggja ára að þá kunni það að breytast hraðar en menni óri fyrir:
„En ef litið er á þróunina á þeim árum, sem liðin eru frá fyrsta eldgosinu, blasir við, að fyrr eða síðar kann þetta breytast hraðar en menn óraði fyrir, ef það er verður aðeins spurning um daga hvenær hraunflæðið brýst út fyrir núverandi hraunsvæði í Meradölum.“
Möguleikinn er raunverulegur með tilkomu kvikugangsins sem liggur frá Litla-Hrút norður í Keili og telur hann að nú fari að steðji hætta að innviðum: „… er sá möguleiki, að hætta fari að steðja að vegi, háspennulínu, byggð og fyrirhuguðum alþjóðaflugvelli.“
Bendir Ómar jafnframt á að þau þrjú fyrstu samliggjandi eldgosaár séu aðeins lítill hluti þess sem kunni að liggja undir. Ef litið sé til þeirra hundrað eldsumbrotaára sem síðast var þegar gaus á Reykjanesi fyrir um það bil 800 árum síðan.