Björgvin Franz Gíslason, leikari, og eiginkona hans Berglind Ólafsdóttir, fjölskulduráðgjafi, hafa sett heimili sitt að Daggarvöllum í Hafnarfirði til sölu. Edda Björgvinsdóttir, móðir Björgvins og stórleikkona, vakti athygli á að í dag verður eignin sýnd á opnu húsi.
Eignin er hin huggulegasta og telur 109 fermetra. Hún er staðsett á þriðju og efstu hæð í fjölbýlishúsi sem byggt var 2004.
Íbúðin er fjögurra herbergja; stofa og þrjú svefnherbergi og hentar því fjölskyldufólki mjög vel.
Opna húsið er frá 17:00-17:30 í dag.
Hér má líta á ljósmyndir úr eigninni: