Mannlífi hefur frá ýmsum heimildarmönnum borðist orðrómar um knattspyrnumanninn Albert Guðmundsson en eins og greint var frá í gær hefur Albert verðið kærður fyrir kynferðisbrot. Albert gaf út yfirlýsingu fyrr í dag þar sem hann segist vera saklaus og muni ekki tjá sig meira um málið meðan það er til rannsóknar. Meðan málið er til rannsóknar má hann ekki spila með íslenska landsliðinu en sagt er að Genoa, félagslið Alberts, standi þétt við bakið á honum.
Orðrómurinn hefur farið eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum og er langur og ítarlegur. Mannlífi hefur ekki tekist að sanna eða afsanna neitt sem stendur í orðróminum en mun leitast til þess á næstu dögum þó slíkt sé gríðarlega erfitt. Mannlíf mun ekki fjalla um efni orðrómsins að svo stöddu.