Óhætt er að segja að vorið kítli landann þessi dægrin og rauðar hitatölur skreyta landakort Veðurstofu Íslands.
„Það er áfram mild suðaustlæg átt hjá okkur í dag og nokkuð hvasst suðvestantil, en hægari vindur í öðrum landshlutum. Súld eða rigning suðaustanlands, annars úrkomulítið. Það er djúp lægð suðvestur í hafi og í kvöld koma skil frá henni inn á sunnanvert landið með samfelldri rigningu,“ segir í hugleiðingum frá veðurfræðingi Veðurstofunnar.
Veðurhorfur fyrir landið næstu daga sýna að mestu óbreyttar hitatölur þó skiptist á skin og skúrir:
Á fimmtudag:
Suðaustan 5-13 og rigning öðru hverju, einkum um landið suðaustanvert. Hiti 2 til 7 stig.
Á föstudag:
Suðaustan 5-13 og dálítil rigning, en bjart veður norðan heiða. Að mestu þurrt suðvestan- og vestanlands seinnipartinn, hiti 2 til 9 stig.
Á laugardag og sunnudag:
Austlæg átt og bjart með köflum, en dálitlar skúrir eða slydduél austantil og við suðurströndina. Hiti 0 til 5 stig, en kringum frostmark norðan heiða.