Í nótt var tilkynnt um utanvegaakstur í skíðabrekkunni í Breiðholti. Þar voru að verki foreldrar á bifreið sinni að draga börn sín á sleða í skíðabrekkunni. Lögregla ræddi við þau sem voru mjög ósátt við að þurfa að hætta að aka með börn í eftirdragi en kváðust ætla að fylgja fyrirmælum. Þá þurfti lögregla einnig að benda á að ökutæki væru ekki heimil í skíðabrekkunni. Ekki var getið til um aldur barnanna.
Rétt áður en jólin hringdu inn klukkan sex var tilkynnt um umferðaróhapp, í Kópavogi. Þá höfðu tvær bifreiðar klessts saman. Kvaðst annar ökumaðurinn ekki hafa náð að stöðva bifreiðina vegna hálku. Báðir ökumenn máttu bíða með jólasteikina og fengu aðhlynningu á Bráðadeild.
Bifreið var stöðvuð í Kópavogi á ellefta tímanum. Ökumaðurinn var grunaður um ölvun við akstur.