Óttar Guðmundsson geðlæknir segir í pistli sem birtist á vefnum Lifðu núna að yfirleitt þegar einhverjum mislíki eitthvað sem hann hafi skrifað þá sé hann kallaður „elliær kallfauskur“ eða álíka ellismánun. Hann bendir á að ákveðin hræsni felst í því þar sem yfirleitt séu það talsmenn pólitískrar rétthugsunar sem geri aldur hans að uppnefni.
Óttar gaf nýverið út bók með pistlum sínum sem birtst hafa víða frá aldamótum. „Umhverfi pistlahöfunda hefur breyst mikið í áranna rás. Lesendur eru mun viðkvæmari en fyrr. Fólk á til að móðgast út í það óendanlega fyrir hönd annarra. Samfélagsumræðan er full af hættulegum jarðsprengjusvæðum. Það úir og grúir af pólitískum varðhundum á netinu sem gelta hátt ef einhver villist út af réttri braut. Netið viðheldur þannig ákveðinni skoðanakúgun í nafni rétthugsunar,“ segir Óttar.
Hann segist oft hafa fengið hrós en líka reiðilestur. „Umræðan á Íslandi er því einhæf þar sem ákveðnir valinkunnir álitsgjafar gefa tóninn og kommentakerfið endurómar skoðanir þeirra. Fastur pistlahöfundur til margra ára verður að haga seglum eftir vindi. Það hefur þó ekki alltaf tekist og ég hef uppskorið mikinn reiðilestur netverja vegna ógætilegra ummæla. En stundum hefur mér heppnast ágætlega og fengið mikið hrós í pottum sundlauganna og frá fisksalanum mínum,“ segir Óttar.
Þeir sem pistlar sem fjalla um viðmót almennings í garð eldri borgara hafa vakið lukku. „Vinsælustu pistlarnir eru venjulega þeir sem fólk tengir við tilfinningalega. Ég skrifaði einu sinni pistil sem kallaðist “Ertu enn?” Hann höfðaði til fjölmargra sem í sífellu fá spurninguna hvort þeir séu enn að vinna, enn í gamla húsinu eða enn að keyra bíl. Samfélagið gengur útfrá því að gamalt fólk eigi að leggja árar í bát á ákveðnum aldri og bíða dauða síns með golfkylfu í hendi,“ segir Óttar.
Hann bendir á að ellismánun sé svo oft beitt til að þagga niður í fólki. „Umræðan á netinu er mjög hatrömm og fæstir virðast óttast meiðyrðalöggjöfina. Þegar netinu mislíkar eitthvað sem ég hef skrifað er ég venjulega kallaður “elliær kallfauskur,” “hálfviti” eða “svokallaður geðlæknir.” Það er lærdómsríkt fyrir eldri borgara hversu fljótir menn eru að grípa til ellismánunar þegar eldri maður á í hlut. Sömuleiðis er þess krafist að ég hætti að vinna enda eiga “karlæg gamalmenni” að halda sig innan veggja skilgreindra stofnana. Ég hef oft velt því fyrir mér af hverju ummæli sem þessi gagnvart eldri borgurum eru ekki skilgreind sem hatursorðræða eins og sams konar ummæli gagnvart öðrum samfélagshópum,“ segir Óttar og að lokum:
„Þeir sem hæst láta á netinu eiga það sammerkt að vilja þagga niður í “elliærum gamalmennum” með öllum ráðum. Þau eigi ekkert erindi inn í þjóðfélagsumræðuna. Það skiptir því miklu máli að láta ekki deigan síga heldur halda áfram að tjá sig og viðra skoðanir sínar þótt þær falli utan ramma hinnar viðurkenndu pólitísku rétthugsunar.“