Lögregla var kölluð til í gærmorgun vegna þriggja bíla áreksturs við Korputorg. Þarna hafði bifreið verið ekið aftan á aðra sem hafnaði svo á þeirri þriðju. Einn var fluttur á spítala með sjúkrabifreið í kjölfarið en þurfti dráttarbifreið til þess að flytja eina bifreiðina af vettvangi.
Skömmu fyrir klukkan tvö í gær handtók lögregla mann vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Var hann látinn laus að lokinni blóðsýnatöku. Lögregla tók upp klippurnar klukkan hálf fimm í gær og fjarlægði skráningarmerki af bifreið í Grundarhverfi en bifreiðin reyndist vera ótryggð. Þá var lögreglu gert vart við umferðaróhapp rétt fyrir klukkan sex í gærkvöldi. Bifreið var ekið á ljósastaur á Höfðahverfinu en ökumaðurinn flúði af vettvangi. Vitni urðu af óhappinu og er málið nú til rannsóknar hjá lögreglu.