Undanfarna mánuði hafa greinst fleiri og fleiri fuglaflensusmit í fuglum hérlendis og þá greindist kettlingur á landinu fyrir stuttu með fuglaflensu og dó hann af völdum hennar. Þá fundust tæplega 20 dauðar gæsir í Vatnsmýri um helgina og talið er líklegt að þær hafi dáið vegna fuglaflensu.
MAST hvetur almenning til að snerta ekki dauð dýr sem það finnur en segir að smithætta fyrir fólk af völdum fuglainflúensu er mjög lítil.
„Matvælastofnun ítrekar tilmæli til almennings um að tilkynna stofnuninni um villta fugla og villt spendýr sem finnast dauð, þegar ástæða dauða er ekki augljós. Það er best að gera með því að skrá ábendingu á heimasíðu Matvælastofnunar. Mikilvægt er að láta mynd fylgja tilkynningunni og gera vel grein fyrir staðsetningu, helst með því að skrá hnit,“ segir í tilkynningunni.
„Nánari upplýsingar eru á líka á síðu Matvælastofnunar um hvað fólk skuli gera ef það finnur veika eða dauða villta fugla eða villt spendýr. Þar er m.a. tekið fram að hræ skuli látin liggja nema ef þau eru þannig staðsett að nauðsynlegt sé að fjarlægja þau. Ef það er gert skal hræið sett í plastpoka, án þess að það sé snert með berum höndum.“
En Mannlíf spyr lesendur sína: Óttast þú fuglaflensu?