Kona sem tengd er fósturforeldrum palestínsku drengjanna sem Útlendingaeftirlitið hyggst senda á götuna í Grikklandi, segir strákana örmagna.
Sunna Björk, sem kallar sig frænku þeirra Sameers og Jazans, sem eru 12 og 14 ára, segir í samtali við Mannlíf, drengina hafa gríðarlegar áhyggjur af ættingjum sínum á Gaza. „Drengirnir tveir eru örmagna og með stanslausar áhyggjur af ættingum sínum. Sprengjum hefur rignt yfir borgina þeirra, Khan Yunis, stanslaust síðan vopnahlé var rofið á föstudag.“ Segir hún að við bætast áhyggur af því að vera sendir aftur til Grikklands. „Ofan á það bætast áhyggjur af því að þeir eru ekki velkomnir hér lengur og þeir sjá fram á að vera sendir í yfirfulla flóttamannabúðir í Grikklandi. Þar er engin barnaverndarnefnd sem tekur á móti þeim, engin huggandi fósturfjölskylda, ekkert. Ekkert nema tómir gámar, með þunnum dýnum og teppum. Enginn matur, svo þeir þurfa að betla á götum Aþenu.“
Fjölskyldan hefur að undanförnu þrýst á Alþingismenn að beita sér í málinu og bíður svara frá þeim. Þá vonar hún að undirskriftarsöfnun til hjálpar drengjanna muni ganga áfram vel.