Laugardagur 21. desember, 2024
0.8 C
Reykjavik

Páll segir engan fæðast í röngum líkama:„Hlutverkaleikur er barnagaman sem sumir vaxa ekki upp úr’’

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Fullorðið fólk má gera hvað það lystir við líkama sinn, tortíma honum ef því er að skipta. En það er ábyrgðarhluti af fólki, sem á að heita fullorðið, að telja ungmennum trú um að hægt sé að fæðast í röngum líkama,’’ skrifar Páll Vilhjálmsson, blaðamaður og kennari, í nýrri bloggfærslu sinni. Færslan hefur vakið hörð viðbrögð og reiði meðal fólks en þar segir kennarinn, löngun til þess að vera annað kyn en maður fæðist, allt annað en að fæðast í röngum líkama.

„Til að einstaklingur fæðist í röngum líkama þarf meðvitundin að verða óháð líkamanum. En meðvitund utan líkama er ekki til. Meðvitundin gerir fólk lifandi. Án meðvitundar er maðurinn sofandi/meðvitundarlaus eða hreinlega dauður.

Meðvitundin skapar upplifun. Einhver getur verið tík án þess að vera geltandi; annar ljónstyggur en samt ekki ferfætlingur. Maður getur verið lúsiðinn en ekki skordýr.

Mörgum finnst líkami sinn ekki nógu stæltur eða grannur; brjóstin of lítil eða manndómurinn væskilslegur. Óánægja með líkamann og líkamsparta er viðtekinn þáttur í menningunni og snar þáttur í efnahagskerfinu. Margvísleg fegrun, húðflúr, líkamsrækt, megrun og lýtalækningar velta milljörðum,’’
skrifar kennarinn. Þá segir hann óafturkræfar aðgerðir og lyfjameðferðir vara fyrir lífstíð. „Hlutverkaleikur er barnagaman sem sumir vaxa ekki upp úr. Það hafa alltaf verið til kvenlegir karlar og karlmannlegar konur. En hugmyndafræðin, blekkingin, um að fæðast í röngum líkama fær sumt ungt fólk til að gangast undir óafturkræfar aðgerðir og lyfjameðferð. Löngun er ein í dag en önnur á morgun. Ekki síst hjá ungu fólki. Óafturkræf inngrip í líkamann vara fyrir lífstíð. 

Þeir sem telja sjálfum sér trú um að vera í röngum líkama eru í reynd að segja meðvitundina og líkamann sitthvað. Ef meðvitundin er ekki líkamleg og náttúruleg hlýtur hún að vera yfirnáttúrleg, guðleg. En þá færi meðvitund aldrei í rangan líkama. Guð, samkvæmt skilgreiningu, gerir ekki mistök,“ skifar hann að lokum en bloggfærslanuna má lesa í heild hér að neðan.

 

„Ekki hægt að fæðast í röngum líkama

- Auglýsing -

Staðhæft er að sumir fæðist í röngum líkama. Að ,,kona“ fæðist í líkama karls og öfugt; ,,karl“ í kvenlíkama. En það er ekki hægt. Ástæðan er eftirfarandi.

Við barnsfæðingu verður til einstaklingur heill og óskiptur. Meðvitundin og líkaminn eru eitt. Hvernig einstaklingurinn vex og dafnar er háð erfðum annars vegar og hins vegar atlæti. Aðeins andvana fæddir eru án meðvitundar. Lifandi fædd börn eru ein óskiptanleg heild, líkami og meðvitund. Hvorugt getur án hins verið.  

Einstaklingurinn er annað tveggja karlkyns eða kvenkyns. Í örfáum tilvikum, vel innan við 1% lifandi fæddra, eru kyneinkenni óræð. Þau tilvik eru læknisfræðilegt úrlausnarefni.

- Auglýsing -

Til að einstaklingur fæðist í röngum líkama þarf meðvitundin að verða óháð líkamanum. En meðvitund utan líkama er ekki til. Meðvitundin gerir fólk lifandi. Án meðvitundar er maðurinn sofandi/meðvitundarlaus eða hreinlega dauður. 

Meðvitundin skapar upplifun. Einhver getur verið tík án þess að vera geltandi; annar ljónstyggur en samt ekki ferfætlingur. Maður getur verið lúsiðinn en ekki skordýr.

Mörgum finnst líkami sinn ekki nógu stæltur eða grannur; brjóstin of lítil eða manndómurinn væskilslegur. Óánægja með líkamann og líkamsparta er viðtekinn þáttur í menningunni og snar þáttur í efnahagskerfinu. Margvísleg fegrun, húðflúr, líkamsrækt, megrun og lýtalækningar velta milljörðum.

Fullorðið fólk má gera hvað það lystir við líkama sinn, tortíma honum ef því er að skipta. En það er ábyrgðarhluti af fólki, sem á að heita fullorðið, að telja ungmennum trú um að hægt sé að fæðast í röngum líkama.

Löngun til að vera annað kyn en manni var úthlutað við fæðingu er allt annað. Drengur getur hagað sér eins og stúlka og stúlka eins og drengur. Hlutverkaleikur er barnagaman sem sumir vaxa ekki upp úr. Það hafa alltaf verið til kvenlegir karlar og karlmannlegar konur. En hugmyndafræðin, blekkingin, um að fæðast í röngum líkama fær sumt ungt fólk til að gangast undir óafturkræfar aðgerðir og lyfjameðferð. Löngun er ein í dag en önnur á morgun. Ekki síst hjá ungu fólki. Óafturkræf inngrip í líkamann vara fyrir lífstíð. 

Þeir sem telja sjálfum sér trú um að vera í röngum líkama eru í reynd að segja meðvitundina og líkamann sitthvað. Ef meðvitundin er ekki líkamleg og náttúruleg hlýtur hún að vera yfirnáttúrleg, guðleg. En þá færi meðvitund aldrei í rangan líkama. Guð, samkvæmt skilgreiningu, gerir ekki mistök.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -