Penninn-Eymundsson er oftast með hæsta verðið á námsbókum en A4 oftast með lægsta verðið. Þetta kemur fram í verðlagskönnun ASÍ á námsbókum, þar sem borin voru saman verð á bæði nýjum og notuðum bókum.
Í flestum tilfellum eða í 18 tilfellum af 35 var 700-1.500 kr. munur á hæsta og lægsta verði á nýjum námsbókum en í þremur tilfellum var enn meiri munur eða 2.000-3.000 kr. Penninn- Eymundsson var oftast með hæsta verðið á nýjum námsbókum en Forlagið næst oftast. A4 var oftast með lægsta verðið, en Iðnú næst oftast.
Mesta úrval nýrra námsbóka var í A4 þar sem 34 titlar af 35 voru fáanlegir, næst flestir fengust í Pennanum-Eymundsson, 30 en fæstir í Heimkaupum, 25. Í Forlaginu fengust 28 titlar og 27 í Iðnú.
Fréttina í heild og lista yfir bækurnar og verðið má sjá á vef ASÍ.