Ráðist var á dyravörð í miðbæ Reykjavíkur og þurfti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að mæta til aðstoða við málið. Árásarmaðurinn var handtekinn og vistaður yfir nótt í fangaklefa. Frá þessu er greint í dagbók lögreglu. Ekki liggur fyrir hvort árásarmaðurinn verður kærður fyrir árásina.
Þá segir einnig í dagbókinni að lögreglan hafi þurft að sinna öðru útkalli á skemmtistað í bænum en þar var á ferðinni maður sem neitaði að yfirgefa staðinn eftir að reynt var að vísa honum út. Samkvæmt dagbókinni var maðurinn í tökum dyravarða en hann hafði sparkað í bíl sem var fyrir utan skemmtistaðinn. Hann var í framhaldinu vistaður í fangaklefa.
Þá hafði lögregla einnig afskipti af nokkrum ökumönnum vegna gruns um áfengis- og/eða fíkniefnaneyslu.