Tvær tilkynningar bárust lögreglunni vegna unglinga í hópum sem brutu rúður í tveimur biðskýlum bæjarins. Þess auk barst tilkynning um rán. Ráðist var á ungan einstakling og hafður af honum fatnaður og önnur verðmæti.
Samkvæmt Dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var talsvert um slys og óhöpp í umferðinni. Í Hlíðahverfi í Reykjavík skullu saman tvær bifreiðar með þeim afleiðingum að önnur valt. Farþegar bifreiðinnar sem valt voru fluttir á bráðamóttöku. Bifreiðarnar voru báðar óökuhæfar og dregnar af vettvangi.
Þá bárust tilkynningar um bíl sem ekið hafði verið á ljósastaur í Breiðholti. Í Hafnarfirði var annar sem klesst hafði verið á skilti og á Álftanesi hafði bifreið verið ekið út af. Ökumaður og farþegar bílsins ræddu lítið eitt við lögreglu en héldu svo áfram leið sinni á ögn löskuðum bíl.