- Auglýsing -
„Þetta gerist öðru hverju en ekki oft því að við erum með um það bil fjögur útköll á sólarhring að meðaltali yfir árið,“ segir í færslu slökkviliðisins á höfuðborgarsvæðinu um að ekkert útkall á dælubíla hafi borist síðastliðinn sólarhring.
Þá var einnig með rólegra móti í sjúkraflutningum en farið var 104 flutninga og af þeim töldust 24 til forgangs. Þá segir jafnfram til útskýringar að flestir flutningar telist til svokallaðs F4:
„Þar sem verið er að flytja einstakling frá einum stað á þann næsta kannski heim eða í rannsókn.“