Rúnar Heiðar Sigmundsson er fallinn frá.
Rúnar Heiðar Sigmundsson, viðskiptafræðingur, á Akureyri er látinn. Hann var níræður að aldri. Frá þessu greinir Akureyri.net.
Rúnar fæddist í Árneshreppi á Ströndum 8. apríl 1933 og lést á heimili sínu á Akureyri föstudaginn 8. september. Rúnar var giftur Helgu Sigfúsdóttur og áttu þau saman fjögur börn, þau Gunnar, Sigrúnu, Sigmund og Guðrúnu. Rúnar bjó mest alla ævi á Akureyri og var meðal annars skrifstofustjóri hjá Skattstofu Akureyrar, umdæmisstjóri Flugmálastjórnar á Akureyri og rak eigin bókhaldsskrifstofu. Rúnar var mikill útvistarmaður og umhverfisverndarsinni.