Rúnar Þór Pétursson, rokkhundur á afmæli í dag. Jörðin hefur snúist 69 sinnum í kringum sólina síðan Rúnar Þór fæddist.
Sólóferill Rúnars Þórs er langur og spannar vel á annan tug sólóplatna. Hann hefur einnig starfað með mörgum hljómsveitum á ferlinum en hann byrjaði á Ísafirði með Blackbird. Þá hefur hann spilað með böndum á borð við Jana, Xplendid, Fjötrar, GRM og Klettar. Með þekktustu laga Rúnars Þórs eru lögin Brotnar myndir, María Ísabel og Drottningin vonda.
Mannlíf vakti afmælisbarnið af værum blundi og spurði hvort það ætlaði að gera eitthvað í tilefni dagsins.
„Ég er að fara að spila í jarðarför hjá Þorsteini Magnússyni gítarleikara klukkan þrjú. En varðandi afmælið, þá ætla börnin mín held ég að bjóða mér eitthvað í mat,“ svaraði Rúnar Þór.
Aðspurður um það sem er á döfinni hjá honum var Rúnar fámáll en sagði þó: „Maður er bara að spila allar helgar.“
Mannlíf óskar Rúnari til hamingju með afmælið og afsakar að hafa vakið hann!