Kristinn Hrafnsson skýtur bylmingsfast á Katrínu Jakobsdóttur fyrir hræsni hennar í málefnum hælisleitenda.
Ritstjórinn hvíthærði, Kristinn Hrafnsson skrifaði Facebook-færslu þar sem hann hlekkjar á frétt Heimildarinnar um afganska lækninn Noorinu Khalikyar, sem yfirvöld hér á landi hafa neitað um hæli. Kristinn rifjar upp sérstakan hliðarviðburð sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skipulagði á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á dögunum. Yfirskriftin á viðburðinum var: Styðjum afganskar konur í að endurheimta mannréttindi („Supporting Afghan Women Reclaiming their Human Rights“). „Baðaði forsætisráðherra sig þar í sviðsljósinu í útlöndum sem sérstök baráttukona fyrir réttindum afganskra kvenna,“ skrifaði Kristinn og bætti við: „Hér heima er ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að vísa Noorinu Khalikyar úr landi, afganskri konu með læknismenntun sem á enga framtíð í heimalandinu undir stjórn Talibana. Hjásetustjórnin stefnir á ólympíugull í hræsni.“