Samstöðin leitar nú allra leiða til að styrkja vefinn sinn.
Gunnar Smári Egilsson skrifaði Facebook-færslu um helgina þar sem hann talaði um niðurstöðuna í máli þar sem blaðamaður Samstöðvarinnar, fjölmiðli Sósíalistaflokksins, Hjálmar Friðriksson, var sýknaður vegna ummæla í fréttum tengdum andláti sextugs Pólverja í eldsvoða á Funahöfða í fyrra.
Fagnaði Gunnar Smári því að tjáningafrelsið sé enn varið hér á landi og skammast í þeim sem kærðu Hjálmar. Segir hann svo í lokin að Samstöðin sé svo fátæk að lögfræðikostnaður vegna málsins hafi grafið undan rekstri stöðvarinnar.
Mannlíf heyrði í Gunnari Smára og spurði hann nánar út í orð hans en aðeins hefur ein frétt birst á vef Samstöðvarinnar síðan 16. desember.
Svaraði Gunnar Smári: „Við drógum úr þjónustunni um mitt ár, og jukum framleiðslu á sjónvarps- og útvarpsþáttum, en erum að leita leiða til að styrkja vefinn.“