- Auglýsing -
Í tilkynningu frá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu greinir um ungan einstakling sem hafði fest sig í dekkjarólu á leikvelli og óskað eftir aðstoð viðbragðsaðila. Þegar slökkviliðið bar að garði hafði lögreglu tekist að losa viðkomandi, sem ku hafa verið frelsinu feginn.
Annars segir:
„Síðasta sólarhringinn voru boðanir á sjúkrabifreiðar hjá okkur 83 talsins en næturvaktin tók 31 verkefni. Boðanir fyrir dælubifreiðar voru þrjár en tvö verkefni voru vegna vatnsleka“