Þriðjudagur 15. október, 2024
6.7 C
Reykjavik

Segir ekki sjálfgefið að Halla veiti Bjarna forystu: „Ef meirihluti á þingi vill annað ræður hann“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Össur Skarphéðinsson segir stjórnskipulega skyldu forseta Íslands að ræða við alla formenn flokka áður en hún tekur ákvörðun um framhaldið. Segir hann meirihluta á Alþingi ráða, ekki Bjarni Benediktsson.

Nú bíða Íslendingar með önduna í hálsinum eftir að fundi Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra og Höllu Tómasdóttur forseta á Bessastöðum ljúki en hann hófst um klukkan 16:00 í dag. Össur Skarphéðinsson fyrrum ráðherra Samfylkingarinnar skrifaði Facebook-færslu rétt fyrir fundinn þar sem hann reifar hugmyndir sínar að stjórnskipulegum skyldum forseta Íslands.

„Stjórnskipulegar skyldur forseta

Bjarni Benediktsson mætir klukkan 16 hjá forseta og afhendir lausnarbeiðni sína. Þar með er ríkisstjórn hans endanlega fallin.

Í ljósi orða Svandísar Svavarsdóttur í Silfri/Kastljósi í gær fer því fjarri að sjálfgefið sé að Halla forseti biðji hann umsvifalaust um að veita forystu starfsstjórn sem í sitji núv. stjórnarflokkar.“

Segir Össur að öllu máli skipti í þessu sambandi hvað Svandís Svavarsdóttir sagði í Silfrinu í gær.

„Í þessu sambandi skiptir öllu máli að í gærkvöldi sagði Svandís tvennt alveg skýrt: Hún hefur að baki sér samþykkt þingflokks VG um að flokkurinn sitji ekki í ríkisstjórn undir forystu Bjarna. Lái þeim hver sem vill.
Ekki skipti minna máli, að hún sagði líka kýrskýrt að skoða þyrfti aðra kosti, nánast sagði hreint út að þegar hefðu átt sér stað samtöl milli einhverra flokka um annars konar stjórn og kallaði eftir tíma til að slíkum samtölum mætti ljúka.
Jafnframt sló hún föstu að VG gæti vel hugsað sér minnihlutastjórn eða bráðabirgðastjórn t.d. undir forystu Sigurðar Inga, formanns Framsóknar, fram yfir kosningarnar.

Við þessar aðstæður er það stjórnskipuleg skylda forseta að ræða við alla formenn áður en hún tekur ákvörðun um framhaldið. Áður en þau samtöl hafa átt sér stað hefur forseti engar forsendur til að óska eftir því að við taki starfsstjórn undir forystu Bjarna. Ef meirihluti á þingi vill annað ræður hann.“

- Auglýsing -

Að lokum segir Össur frá eina möguleikanum fyrir Höllu að tilkynna starfsstjórn Bjarna Ben:

„Eini möguleikinn fyrir forseta til að tilkynna starfstjórn Bjarna Benediktssonar að lokinni afsögn hans er að Bjarni geti fullvissað forsetann á fundi þeirra að ráðherrar VG séu á þeirri stundu reiðubúnir til að sitja í slíkri starfsstjórn, eða m.ö.o. að ekkert sé að marka yfirlýsingar formanns VG.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -