Gunnar Smári Egilsson segir að Sjálfstæðisflokkurinn sé svarið við „getuleysi borgaryfirvalda í dag.“
Sósíalistaforinginn skrifaði eftirfarandi færslu í Facebook-hópi Sósíalistaflokksins en með henni birtir hann gamla ljósmynd frá Reykjavík.
„Sjálfstæðisflokkurinn stýrði Reykjavík frá 1928 til 1978 og svo aftur frá 1982 til 1994. Í tíð flokksins var borgin svona. Það er eðlilegt að fólk sé þreytt á getuleysi borgaryfirvalda í dag, enda virkar margt í rekstrinum alls ekki. En lausnin er ekki Sjálfstæðisflokkurinn. Trúið mér, ég ólst upp í borg Sjálfstæðisflokksins.“
Hallgrímur Helgason rithöfundur og málari skrifaði athugasemd við færsluna: „Það fyndna var að borgin var eins og borg í kommúnistaríkjunum, grá og döpur og flest allt bannað.“
Þór Saari, fyrrum þingmaður skrifaði einnig athugasemd: „Já maður hefur svo sem ekki mjög mikið álit á borgarstjórninni og það er mörgu klúðrað, en úff! þvílíkur hryllingur ef það væri Sjálfstæðisflokurinn sem stýrði málum.“