Björn Leví Gunnarsson segir Jódísi Skúladóttur senda kaldar kveðjur til Katrínar Jakobsdóttur í svörum sínum til Vísis.
Jódís Skúladóttir, þingmaður Vinstri grænna sagði í samtali við Vísi að VG-liðar hefðu lúffað of mikið fyrir samstarfsflokkum sínum í ríkisstjórninni. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata skrifar Facebook-færslu um þessi orð Jódísar og segir hana senda Katrínu Jakobsdóttur kaldar kveðjur.
„“VG-liðar hafa gengið of langt í málamiðlunum í ríkisstjórnarsamstarfinu að mati þingmanns flokksins og hreyfingin getur ekki gefið meiri afslátt“
Kaldar kveðjur sem fyrrverandi formaður flokksins fær um hæfileika sína til að gera málamiðlanir. Einnig veltir maður því fyrir sér hvort almennir þingmenn eða grasrót hafi ekkert um þær málamiðlanir að segja og beri því ekki einhverja ábyrgð á þessu.“ Þannig hefst færsla Björns Levís. Píratinn fagnar svo viðurkenningu þingmannsins en bendir á að vandinn sé þó enn til staðar, í ljósi þess að í gær var afar umdeilt útlendingafrumvarp samþykkt á þingi: