Jóhann fer hörðum orðum um ríkisstjórnina í nýjum pistli.
Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, telur að sú hegðun sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra hafa sýnt undanfarna daga sé óboðleg og minni á sápuóperu.
„Ef Katrín Jakobsdóttir er raunverulega og opinberlega á móti því hvernig Bjarni Benediktsson beitir valdi sínu sem utanríkisráðherra þá getur hún ekki leitt ríkisstjórn með Bjarna Benediktsson í utanríkisráðuneytinu,“ sagði Jóhann í pistli á Facebook en Bjarni og Katrín hafa verið í deilum um utanríkisstefnu landsins fyrir opnum tjöldum. Á sama tíma versnar ástandið á Gaza dag frá degi.
„Ástandið fyrir botni Miðjarðarhafs er alltof hryllilegt til að ríkisstjórn geti boðið þjóðinni upp á sápuóperu í fjölmiðlum um hver sagði hverjum hvað hvenær. Það er óboðlegt,“ sagði Jóhann að lokum.
Hægt er að lesa alla færslu Jóhanns hér fyrir neðan