Illugi Jökulsson segir Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra ljúga blákalt í viðtali.
Eins og alþjóð veit hrökk Svandís Svavarsdóttir frá hvalveiðibanninu í morgun. Sagði hún í viðtali eftir ríkisstjórnarfundinn að hún hefði ekki látið undan hótunum Sjálfstæðismanna. Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður skrifaði harðorða færslu á Facebook í dag þar sem hann segir ráðherrann hreinlega ljúga. „Ég hélt í alvöru að hún myndi aldrei ljúga, síst svona blákalt og billega.“
Færsluna má lesa hér fyrir neðan:
„Sko. Marga skoðun má hafa á hvalveiðum. En þegar Svandís segir að hún sé „ekki að láta undan hótunum“, þá er hún ósköp einfaldlega að ljúga. Hún er VÍST að láta undan hótunum. Og af hverju þarf hún endilega að fara með augljósar lygar? Við vitum sannleikann og hún veit að við vitum það, svo til hvers? Einu sinni kaus ég VG bara af því ég var svo ánægður með hinn efnilega pólitíkus Svandísi Svavarsdóttur. Ég hélt í alvöru að hún myndi aldrei ljúga, síst svona blákalt og billega.“