Jólagjafaþjófur var á ferð í Smáralind Kópavogi í gær. Hann rændi jólapakka með nýjum fötum. Þjófurinn hefur væntanlega verið kulvís því hann greip með sér úlpu áður en hann hraðaði sér á brott. Vandi þjófsins var sá að athæfi hans náðist á öryggismyndavélar. Lögreglan veit hver hann er og bíður færis að svipta hann úlpu og öðrum ránsfeng.
Annar þjófur var staðinn að varki á sömu slóðum. Sá var stöðvaður þegar hann var að yfirgefa verslun með fatnað sem hann hafði ekki greitt fyrir. Maðurinn viðurkenndi brotið og kvaðst hafa stolið fötunum því honum væri svo kalt.
Nokkuð var um umferðarbrot á þorláksmessu. Tveir voru að flýta sér um of og óku yfir á rauðu ljósi. Þeir viðurkenndu brotin af sönnum jólaanda og voru skráðir á blöð lögreglunnar. Þeirra býður há sekt á milli hátíða. Þriðji ökumaðurinn var gripinn á rauðu í miðborginni. Hann þrætti og sagðist hafa verið á gulu ljósi. Hann var ekki með ökuskýrteini og verður látinn svara til saka.
Í Úlfarsárdal var þjófur á ferð í gær. Hann braust inn á heimili um bakhurð sem han spennti upp. SÞjófurinn hafði á brott með sér skartgripi. Þar á meðal var verðmætt silfurskrauti á íslenskan þjóðbúning.
Vitstola maður var staðinn að verki við að skemma bifreiðar í Árbæjarhverfi. Honum var umsvifalaust komið fyrir í fangageymslu lögreglu. Að morgni aðfangadags verður fyrsta verkefni hans að svara fyrir gjörðir sínar og bæta þolendum tjónið.