- Auglýsing -
Blár sendiferðabíll stóð alelda fyrir utan Bónus í Hveragerði. Ekki er vitað enn vitað um upptök eldsins. Slökkvilið er nú búið að ná tökum á eldinum.
Vegfarandi sagði í samtali við Mannlíf að á þeim rúmu tíu mínútum sem hann var á svæðinu kom hvorki lögregla, né slökkvilið. Almennir borgarar sóttu vatn inn í búðir og reyndu að slökkva eldinn. Þess má geta að slökkviliðsstöðin í Hveragerði er í næsta húsi við Bónus og því ekki langt fyrir þá að fara.