Mánudagur 6. janúar, 2025
-3.2 C
Reykjavik

Sérfræðingur fenginn til að aðstoða Jóhann Pál

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Lárus M. K. Ólafsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra samkvæmt til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðsins. 

„Lárus er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og hefur sérhæft sig á sviði umhverfis- og auðlindamála. Hann var yfirlögfræðingur Orkustofnunar 2008-2011 og jafnframt staðgengill orkumálastjóra.

Lárus hefur frá 2019 starfað sem sérfræðingur á sviði orku- og umhverfismála hjá Samtökum iðnaðarins, en áður var hann lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ) og Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF). Þá starfaði hann sem lögfræðingur á skrifstofu orkumála hjá iðnaðarráðuneytinu og félagsmálaráðuneytinu á árunum 2005-2008.

Lárus hefur enn fremur annast kennslu á sviði umhverfis- og auðlindaréttar ásamt því að vera prófdómari við Háskóla Íslands á framangreindum sviðum.

Lárus hefur gegnt ýmsum nefndar- og stjórnarstörfum og hefur m.a. frá 2024 verið formaður norræna umhverfismerkisins Svansins á Íslandi og verið varaformaður í stjórn Úrvinnslusjóðs frá 2012.“

Lárus tekur til starfa á næstu dögum samkvæmt tilkynningunni

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -