- Auglýsing -
Sérsveit ríkislögreglustjóra var í nótt kölluð til eftir að grunsamlegur hlutur fannst í ruslagámi.
Þetta segir í tilkynningu lögreglu. Þar segir að hinn grunsamlegi hlutur hafi fundist í ruslagámi í Mánatúni í Reykjavík á fjórða tímanum í nótt. Þrír eru í haldi lögreglu eftir fundinn.
„Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu,“ segir í tilkynningu lögreglu.