- Auglýsing -
Sérsveit Ríkislögreglustjóra handtók mann í fjölbýlishúsi við götuna Norðurbrú í Garðabæ fyrr í kvöld. DV greinir frá þessu.
Að sögn sjónarvotts þá voru þetta viðamiklar aðgerðir. „Það fóru sérsveitarmenn inn í húsið með skildi fyrir sér og voru þarna inni í svona 10-15 mínútur,“ hefur DV eftir konunni.
„Síðan komu þeir út með ungan mann og fóru með hann burtu.“
Lögregla verst allra fregna af málinu.