Stærðarinnar lögregluaðgerð stendur yfir við Fjölbrautaskólann í Breiðholti en sérsveit Ríkislögreglustjóra var meðal annars kölluð til.
Samkvæmt frétt Vísis, sást sérsveit Ríkislögreglustjóra aka á móti umferð á Sæbraut við Skútuvog í Reykjavík á fjórtánda tímanum í dag. Þá hafi fjölmargir lögreglubílar, bæði merktir og ómerktir verið við Fjölbrautaskólann í Breiðholti um svipað leiti og ljóst að um stóra lögregluaðgerð er um að ræða.
Mannlíf ræddi við Gunnar Hilmarsson aðalvarðstjóra lögreglustöðvarinnar í Kópavogi, sem sér um mál tengdum Breiðholtinu. Sagðist hann lítið geta sagt, annað en: „Þetta voru strákar með leikfangabyssur.“ Aðspurður hvort þeir hafi ógnað einhverjum með byssunum eða hvort um fíflagang hafi verið að ræða, svaraði Gunnar: „Einhver fíflagangur en ég hef ekki nánari upplýsingar.“ Samkvæmt Gunnari varð engum meint af í aðgerðum lögreglunnar en að brátt muni lögreglan senda frá sér yfirlýsingu um málið.