Silja Hinriksdóttur er margt til lista lagt sem hefur meðal annars í gegn um tíðina starfað sem myndlistarkona og vefhönnuður. Nú hefur hún farið að stað með spennandi verkefni til að vekja athygli á konum sem hafa haft áhrif á mannkynssöguna og samfélagið í heild sinni – en hafa ef til vill ekki fengið næga athygli fyrir.
Markmið verkefnisins er að fjalla um áhrifamiklar konur sem hafa veitt Silju sérstakan innblástur í gegnum ævina.
Verkefnið hefur hlotið nafnið Tiny Toast sem gefur skírskotun í að skála fyrir ákveðnum viðburðum eða einstaklingum.
Af Hverju ákvaðstu að fara af stað með þetta verkefni?
„Ég vildi bara vekja athygli á öllum þessum frábæru konum. Það fór alltaf í taugarnar á mér hvað mér fannst halla á konur í myndlist þegar ég var myndlistarnámi út í London og það hefur eflaust haft áhrif á mig,“ sagði Silja og hélt áfram. „Móðir mín er einnig mikill feministi og var í Rauðsokkunum á sínum tíma og hún hefur alltaf hvatt mig til að spyrja spurninga. Af hverju eru t.d. söluhæstu listamennirnir allt karlmenn? Stundum nær kannski ein kona á top 10 listann, en af hverju eru þær ekki fleiri?“
Hvað ertu að vonast til að fá út úr þessu verkefni?
„Bara helst smá vitundarvakningu. Við erum búin að ná svo ótrúlega langt á stuttum tíma þegar það kemur að jafnrétti, en það má alltaf gera betur.“