Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur verið boðaður til fundar á morgun, vegna mögulegs forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Hildur Sverrisdóttir þingflokssformaður flokksins er sú sem ákvað fundarboðið.
Í samtali við mbl.is staðfestir Hildur að hún hafi boðað til fundarins.
„Já ég get staðfest að við munum halda þingflokksfund á morgun. Þrátt fyrir að Alþingi sé ekki að störfum finnst mér rétt að boða til þingflokksfundar vegna þessarar stöðu. Þó að ekkert liggi fyrir enn sem komið er finnst mér eðlilegt að við ræðum saman okkar í milli hvað mögulegt framboð forsætisráðherra gæti haft í för með sér,“ segir Hildur í samtali við mbl.is.
Aðspurð um það hvaða áhrif framboð Katrínar hefði á ríkisstjórnarsamstarfið svaraði Hildur:
„Það gefur auga leið að það mun hafa einhver áhrif á þetta samstarf. Staðan er sú að þetta liggur ekki fyrir.“
Telur Hildur að meiri líkur en minni séu á að Katrín bjóði sig fram til embættis forseta Íslands.
„Miðað við þann tíma sem hefur liðið þá myndi ég persónulega halda að það væru meiri líkur en minni. En ég hef ekkert meiri fyrir mér í því heldur en hver annar sem er að fylgjast með þessari atburðarás að svo komnu máli,“ segir Hildur.
Samkvæmt heimildum mbl.is ræddi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, við þingmenn flokksins um hvað væri best að gera ef svo færi að Katrín færi í framboð og hvaða áhrif það hefði á ríkisstjórnarsamstarfið. Ýmsir kostir ku hafa verið ræddir í þeim samtölum.
Sagt var frá því í fréttum í gær að lénið katrinjakobs.is hafi verið stofnað á þriðjudaginn í síðstu viku. Rétthafinn af léninu er sá sami og var rétthafi af léninu katrinjakobsdottir.is sem stofnað var árið 2006 en líklegt verður að teljast að Katrín sé sá rétthafi enda hefur það lén verið notað af henni sjálfri í gegnum árin.