- Auglýsing -
Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa ákveðið að styrkja stjórnvöld í Úkraínu um eina milljóna bandaríkjadala, eða jafnvirði um 130 milljóna króna. Með þessu vilja fyrirtæki í íslenskum sjávarútvegi leggja sitt af mörkum með von um að bundinn verði endir á hörmungar úkraínsku þjóðarinnar hið fyrsta. Haft verður samráð við íslensk stjórnvöld um ráðstöfun fjárins. Fyrirtækin sem í hlut eiga eru:
- Brim, Reykjavík
- Eskja, Eskifirði
- Guðmundur Runólfsson hf Grundarfirði
- Gjögur, Grenivík
- Hraðfrystihúsið Gunnvör, Hnífsdal
- Iceland Seafood
- Ísfélagið í Vestmannaeyjum
- Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði
- Oddi, Patreksfirði
- Rammi, Siglufirði
- Samherji, Akureyri
- Síldarvinnslan í Neskaupstað
- Skinney-Þinganes, Höfn í Hornafirði
- Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum
- Vísir, Grindavík
- Þorbjörn, Grindavík
- Arctic Fish, Ísafirði.