Á meðan fyrsta snjó vetursins kyngdi niður á höfuðborgarsvæðinu hafði lögreglan í mörg horn að líta. Um fimm leytið í gærdag var tilkynnt um þjófnað í verslun í Hafnarfirði. Hinn grunaði Kjetkrókur, gat ekki á sér setið og skemmdi vörur að verðmæti 160.000 króna með því að skera í meðal annars hamborgarhryggi og kjötumbúðir.
Lentu töluvert margir ökumenn í vandræðum í gærkveldi og nótt. Bárust lögreglu tilkynningar af slysum víðs vegar um borgina og þurfti Krókur að aðstoða við flutning á skemmdum ökutækjum.
Á um annað hundrað ökumanna og bifreiða var kannað á tíunda tímanum. Einn ökumaður var handtekinn þar sem í honum mældist áfengi og ólögleg vímuefni, ásamt því að hafa verið að aka sviptur ökuréttindum Tveir aðrir ökumenn reyndust vera undir refsimörkum og var þeim gert að hætta akstri.
Í miðborginni hafði lögreglan eftirlit með vínveitingarstöðum og voru tveir veitingastaðir kærððir þar sem dyraverðir voru ekki með réttindi í lagi.
Á fimmta tímanum í nótt var einn grunaður um ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni og vörslu fíkniefna. Maðurinn var vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Þá var höfð afskipti af tveimur mönnum við Austurvöll. Mennirnir voru grunaðir um vörslu fíkniefna.