Nú þegar heimsfaraldur er á undanhaldi og sumarið gengið í garð er ljóst að fólk er í auknum mæli farið að hugsa sér til hreyfings – að minnsta kosti í formi ferðalaga. Nýjustu tölur sína að Íslendingar slógu met í ferðum af landi brott í maímánuði. Tölurnar eru þær hæstu frá upphafi mælinga fyrir fimmta mánuð ársins.
Margir hafa ekki farið erlendis síðan áður en faraldur Covid-19 skall á. Ýmsir þeirra hafa þó undanfarin tvö sumur fundið mikla gleði í ferðalögum innanlands og jafnvel uppgötvað landið sitt nýjan hátt.
Mannlíf vill því spyrja lesendur sína hvað stendur til þetta sumarið, þegar ástandið er orðið eðlilegra og engar hömlur á ferðalögum. Ætlar þú að skella þér í frí erlendis eða verður einhver af ótal spennandi áfangastöðum í heimalandinu fyrir valinu?
Hér fyrir neðan er hægt að greiða atkvæði.