ÁTVR hefur lagt fram kæru á hendur Arnari Sigurðssyni, frönsku netversluninni Santewines SAS og innflutningsfyrirtækinu Sante til lögreglu og skattayfirvalda. Samkvæmt heimildum Mannlífs hafa kærur líka verið lagðar fram gegn Bjórlandi, Brugghúsinu Steðja sem og eigendum þessara fyrirtækja.
Netverslun með áfengi hér á landi fer ekki vel í stjórn ÁTVR sem ætlar að reyna að fá lögbann lagt á þessa starfsemi. ÁTVR telur að um væri að ræða brot á einkaleyfi þess til að selja og afhenda áfengi í smásölu.
Nú væri gaman að heyra skoðun lesenda, vilt þú að sala áfengis á Íslandi verði gefin frjáls?