Veðbankar hafa sagt sitt en nú er komið að lesendum Mannlífs. Hér fyrir neðan geta lesendur kosið hver þeim finnst að eigi að sigra Söngvakeppni sjónvarpsins og halda utan fyrir Íslands hönd.
Söngvakeppni sjónvarpsins fer fram í kvöld með pompi og prakt. Þá kemur í ljós hvert framlag Íslands verður í Eurovision á Ítalíu í maí. Ljóst er að Íslendingar verða ansi margir límdir við skjáinn í kvöld eins og venja er.
Svo mikill er æsingur þjóðarinnar þegar kemur að Eurovision að bandaríski fréttaskýringaþátturinn 60 Minutes er með tökulið sitt statt hér á landi og ætlar að fylgjast með úrslitum kvöldsins. Tilgangurinn er að skyggnast inn í hinn alræmda Eurovision-áhuga Íslendinga. Umfjöllum þáttarins lýkur ekki þar, heldur ætlar tökuliðið að fylgja íslenska framlaginu eftir til Ítalíu. Það ríður því á að velja vel í kvöld.
Fimm atriði keppa til úrslita í kvöld. Þau eru sannarlega fjölbreytt og sitt sýnist hverjum.