Drífa Snædal segir að ævilöng skömm og niðurlæging fylgja þeim sem samþykktu útlendingalögin.
Talskona Stígamóta, Drífa Snædal hefur barist að undanförnu fyrir þeim þremur mansalsfórnarlömbum sem misstu í gær allan stuðning stjórnvalda og lentu á götunni en þetta er bein afleiðing af breytingum á útlendingalögum sem samþykkt var á liðnu þingi.
Konurnar þrjár fengu inni hjá góðviljugu fólki að lokum en algjörlega óvíst er um framhaldið. Drífa skrifaði stutta en hnitmiðaða færslu á Facebook í gær þar sem hún segist hafa upplifað bæði djúpa mannvonsku kerfisins og gæsku einstaklinga. Færslar er í heild sinni hér að neðan.
„Í dag hef ég upplifað djúpa mannvonsku kerfisins en líka gæsku einstaklinga sem vita hvað mannúð er. Skömm og niðurlæging þeirra sem samþykktu breytingar á útlendingalögunun mun fylgja þeim alla tíð.“