NASF á Íslandi, Landssamband Veiðifélaga, Náttúruverndarsamtök Íslands og fleiri samtök og fyrirtæki skora á yfirvöld vegna umhverfisslyss Arnarlax í Arnarfirði en þá sluppu 80.000 norskir eldislaxar úr opinni sjókví Arnarlax á Vestfjörðum.
Eftirfarandi áskorun var send á stjórnvöld:
Áskorun til stjórnvalda vegna umhverfisslyss Arnarlax í Arnarfirði
Villtum stofnum fórnað
Nýverið sluppu um 80.000 frjóir norskir eldislaxar úr opinni sjókví Arnarlax á Vestfjörðum. Villti laxastofninn á Íslandi telur um 50.000 laxa. Slysasleppingin er grafalvarlegt umhverfisslys sem Arnarlax hefur verið sektað um 120 milljónir króna fyrir og mun hafa alvarleg erfðafræðileg áhrif á villta laxastofna á Íslandi.
Slysasleppingin er enn fremur staðfesting þess að fögur fyrirheit fyrirtækja í sjókvíaeldi eru fölsk og opinberar hún einnig skeytingarleysi fyrirtækisins gagnvart hagsmunum náttúrunnar þegar ákveðið er að mótmæla sektargreiðslunni.
Náttúrunni fórnað
Erfðamengun villtra stofna í kjölfar slysasleppinga er óafturkræft umhverfisslys. Ekki stendur þó aðeins villtum laxastofnum ógn af sjókvíaeldi því iðnaðurinn skilur einnig eftir sig mengun á hafsbotni, öðrum villtum stofnum stafar ógn af lúsafári og sjúkdómum og ímynd óspilltrar náttúru Íslands er í hættu.
Byggðum fórnað
Á Íslandi eru rúmlega 2.250 lögbýli sem treysta á tekjur frá laxveiðiám og skapar laxveiðin margfalt fleiri störf en sjókvíaeldi mun nokkurn tíma gera. Efnahagslegt virði lax- og silungsveiða nemur 13,5 milljörðum króna árlega. Slysasleppingar sem þessi rýra verðmæti þeirra náttúrulegu auðlinda sem fjölskyldur á landsbyggðinni treysta á. Orðspor Íslands sem upprunalands hreinleika er líka svert.
Lærum af reynslu annarra
Ætla stjórnvöld að gera sömu mistök og aðrar þjóðir sem ala frjóan og framandi lax í opnum sjókvíum? Er stefna stjórnvalda að þurrka út villtan lax á Íslandi og þar með hlunnindi og ferðaþjónustu í laxveiðiám fyrir ofsagróða norskra sjókvíaeldisfyrirtækja? Af hverju eru íslensk stjórnvöld að gefa erlendum stórfyrirtækjum auðlindir okkar?
Áskorun til stjórnvalda
Undirrituð samtök og fyrirtæki skora á matvælaráðherra að stöðva laxeldi í opnum sjókvíum áður en það verður um seinan. Kallað er eftir trúverðugri áætlun sem miðar að því að banna alfarið laxeldi í sjókvíum hér við land.
Það er ljóst að ef stjórnvöld hafa raunverulegan áhuga á að vernda villta laxastofna og náttúru Íslands, þá þarf að stöðva fiskeldi í opnum sjókvíum. Á meðan verið er að stunda sjókvíaeldi á Íslandi þarf að gera það eftir allra ströngustu stöðlum. Þar ber helst að nefna NASCO staðlana sem ítrekað hafa verið sendir á stjórnvöld. Undirrituð samtök og fyrirtæki skora á matvælaráðherra að innleiða þessa staðla og gefa engan afslátt af þeim á meðan verið er að stunda þessa mengandi starfsemi í fjörðum landsins.
Einnig er skorað á ferðamálaráðherra að vernda þau 2.250 lögbýli sem treysta á laxveiðihlunnindi og eru ómetanlegur partur af ferðaþjónustu landsins.
Stöndum vörð um íslenska náttúru!
NASF á Íslandi, Landssamband Veiðifélaga, Icelandic Wildlife Fund, Laxinn Lifi, Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Ungir Umhverfissinnar, Lax-á, Veiðiflugur, Veiðivön, Höklar, Six Rivers Project, Stóra-Laxá, Fuss, Laxá á Ásum, Starir, Miðfjarðará, Eleven Experience, Norðurá, Stangaveiðifélag Reykjavíkur (SVFR), Hreggnasi, Vatnsdalsá, Veiðifélagið, Fish Partner og Flugubúllan.