Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt.
Tilkynnt var um tvenn slagsmál á börum í nótt, í Hafnarfirði og Breiðholti, og þurfti að flytja einn á slysadeild. Þá voru átta einstaklingar handteknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna. Lögreglan þurfti að hafa afskipti af manni í annarlegu ástandi sem labbaði milli veitingastaða í miðbænum og áreitti gesti og gangandi. Lögreglan ræddi við manninn og hætti hann að áreita fólk og gekk svo leiðar sinnar.
Tilkynnt var um þjófnað í íþróttamiðstöð en ekki gefið upp hvaða íþróttamiðstöð um ræðir. Málið er til rannsóknar. Þá var sagt frá umferðaróhappi þar sem keyrt var á grindverk. Einn fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild til frekari aðhlynningar. Ekki vitað hversu alvarleg meiðsli hans eru.
Þá fékk lögreglan nokkar tilkynningar um grunsamlegar mannaferðir víða í bænum og skoðaði þau mál með viðeigandi hætti.