- Auglýsing -
Næg verkefni voru á næturvaktinni hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, en meðal annars voru níu COVID-19 flutningar. Farið er í slíkt ferli ef grunur er um að viðkomandi sé smitaður eða sé smitaður en glími við önnur heilsufarsleg vandamál.
Þá taka gildi sérstakir verkferlar til að koma í veg fyrir smit, meðal annars þarf að þrífa og sótthreinsa allan búnað og ökutæki.
RÚV greinir frá.
72 eru í einangrun á Íslandi með virkt COVID-19 smit, 569 eru í sóttkví og einn er á sjúkrahúsi.