Svo virðist sem gríðarleg aukning hafi orðið á greindum tilfellum lekanda hér á landi en Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir segir málið áhyggjuefni í samtali við Vísi í dag. Kynsjúkdómurinn getur að sögn sóttvarnalæknis haft alvarlegar afleiðingar og getur fólk sem smitast fengið alvarlegar sýkingar. Lekandi geti einnig valdið ófrjósemi. Í frétt Vísis kemur fram að alls hafi 158 einstaklingar greinst með lekanda á síðasta ári en er það mesti fjöldi sem greinst hefur á landinu í þrjátíu ár. Sjötíu prósent þeirra sem greindust voru karlmenn en þrátt fyrir það hefur mikil aukning orðið í smitum ungra kvenna á Íslandi.
„Einkennin geta verið væg, eins og blöðrubólga og verið þá jafnvel misgreint og það er áhyggjuefni sérstaklega hjá konum á þessum aldri því lekandi getur smitast til barns við fæðingu og getur þá valdið sýkingu í barni og einkennum hjá þeim og jafnvel alvarlegum fylgikvillum,“ sagði Guðrún. Þá segir hún mikilvægt að fólk sem greinist stundi ekki kynlíf á meðan meðferð stendur en umfram allt sé mikilvægt að fólk stundi öruggt kynlíf og noti verjur.