Búist er við hvassviðri víða um land í dag en útlit er fyrir sunnanátt samkvæmt vef Veðurstofu Íslands. Úrkoma verður í mismunandi formi en hlýrri loftmassi berst nú yfir landið. Á höfuðborgarsvæðinu má búast við snjókomu í dag og á morgun en hlýnar í veðri þegar líða tekur á vikuna.
„Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag: Suðvestan 8-15 m/s og él, en bjartviðri norðaustantil á landinu. Frost 0 til 5 stig.
Á miðvikudag: Vestlæg eða breytileg átt og él í flestum landshlutum. Frost 2 til 10 stig.
Á fimmtudag: Suðvestanátt og él eða slydduél, en þurrt austanlands. Hiti kringum frostmark.
Á föstudag: Suðlæg eða breytileg átt og rigning, slydda eða snjókoma víða um land. Hiti um og yfir frostmarki. Kólnar síðdegis með stífri suðvestanátt og éljagangi, en léttir til um landið austanvert.
Á laugardag: Norðanátt með snjókomu á norðanverðu landinu, en vestlægari og él sunnantil. Frost 2 til 8 stig.“